30.03.2011
 Stóđhesturinn okkar Flugar frá Kollaleiru MYNDIR

Flugar frá Kollaleiru er stóðhestur undan Flugu frá Kollaleiru og Andvar frá Ey.  Móðir Flugars var undan Stjörnu frá Hafursá og Laufa frá Kollaleiru.  Hálfbróðir Flugars er Kjerúlf frá Kollaleiru sem hefur hlotið 8,61 fyrir hæfileika.  Flugar er frábær alhliða gæðingur og er hann í þjálfun hjá Leó Geir fyrir sunnan. Hér koma nokkrar myndir af kappanum. 

 

 

                                                                                                      Mynd: Sara Ástþórsdóttir

                                                                                                             Mynd: Sara Ástþórsdóttir

                                                                                                                        Mynd: Sara Ástþórsdóttir

                                                                                                             Mynd: Sara Ástþórsdóttir

                                                                                                               Mynd: Sara Ástþórsdóttir

Þangað til næst hafið það gott !!

Nánar »  
 27.03.2011
 Ađ gleyma sér er gott stunum !

Af okkur er allt gott að frétta, mikið riðið út og allt gengur bara vel lyggur meira að segja vel á honum  Hans.  Það kom kafli um daginn sem var mikið rok í nokkra daga hér á Reyðarfirði það var í lagi því að þetta gerist ekki mjög oft hér að kári blási samfelt í svona langan tíma en það var nú bara ágæt tilbreyting frá sólinni og vorinu.  Við förum stundum í rekstur og hafa allir gaman að því ég tók nokkrar myndir í gær af laugardagsrekstrinum okkar veðrið var hreint út sagt frábært.

Við kepptum á Ístölti Austurlands og gekk það ágætlega Hans varð í 2-3 á Stórval í b-flokknum og 4 í töltinu ágætt það. 

Nikka varð í 7.sæti í b-flokknum á honum Þyt frá Kollaleiru.  Nikka keppti líka á Kvennatölti á Neskaupsstað varð í 1. sæti þar en þar voru verðlaunin ekki af verri endanum það var rosalega fallegur farandgripur sem var veittur og síðan 50þúsund krónur það var heldur betur ferð til fjár :)

Mynd frá kvennatölti Blæs

Síðustu helgi var svo fyrsta mótið í Fellabakarísmótaröðinni hjá okkur Freyfaxamönnum uppí reiðhöll og vorum við hjú bæði í A-úrslitum.  Hans varð í 1 sæti á honum Safír frá Sléttu og Nikka endaði í 5.sæti á honum Þyt frá Kollaleiru.  Þytur brokkaði lítið í úrslitunum en annas vorum við bara mjög ánægð með útkomuna :)

 Svo er gaman að segja frá því í lokinn að Flugusynirnir Kjerúlf og Flugar frá Kollaleiru eru í góðum gýr núna hjá Leó Geir og við eigum von á myndum af þeim á næstu dögum. Fyrir þá sem ekki vita eru þeir báðir undan Flugu frá Kollaleiru sem var undan Laufa frá Kollaleiru.  Kjerúlf er undan Takt frá Tjarnarlandi og Flugar er undan Andvar frá Ey.

Þangað til næst !! :)

Nánar »  
 31.12.2010
 Loksins skárra veđur

Loksins er veðrið farið að hægja á sér það er vægast sagt  búið að vera brjálað.  Þökkum við guði fyrir að folöldin okkar og útigangshrossin hafi lifað þetta ofsaveður af !


Það er allt gott að frétta af okkur og eru húsin að verða þéttsetin! Við erum loksins búin að taka höfðingjana okkar inn það er alltaf jafn yndislegt :) Þeir líka feignir að fá að koma inn úr þessum veðurofsa.  Það gengur vel með tryppin gengur mjög vel eru hrossin sem eiga eftir að koma inn vonandi að týnast til okkar á næstu dögum. 


Hrossin okkar sem við vorum að taka inn núna eru :  



Litli blési eða Þytur frá Kollaleiru Hann er undan gæðingamóðirinni henni Flugu frá Kollaleiru og Þengli frá Kjarri. Hann er frábær klárhestur rúmur og skemmtilegur. blési er 10.vetra






Sveppi, hrúturinn hreinn eða Bessi frá Björgum Hann er undan Hilmi frá Sauðárkróki og Vönju frá Eyjólfsstöðum.  Hann er yndislegur karakter svo ljúfur og góður.  Hann er góður klárhestur sem er búin að ná góðum árangri í keppni! Þuríður Lillý verður með yfirumsjón með honum. Bessi er 14.vetra



Ronja frá Kollaleiru efnileg 5.vetra hryssa undan Huginn frá Haga og Stjörnu frá Eskifirði. Þessi hryssa er með allan gang og er eins og hugur mans! spennandi að sjá hvernig hún verður!



Síðastur er það elsku Stórval frá Lundi Hann er undan Hviku frá Mýnesi og Hróð frá Refstöðum.  Hann er fallegur, frábær og mjög sérstakur á sinn hátt.  Þetta er stór klárhestur sem er svaka mjúkur og skemmtilegur 6.vetra.




Þangað til næst hafið það gott!!

Nánar »  
 31.12.2010
 Nýtt ár 2011

Við viljum þakka fyrir gamla árið og vonum að þetta ár sem var að ganga í garð verði öllum gott og gæfuríkt !!  



Hans&Nikka

Nánar »  

1  2  3  4  5  Næsta síđa 
Kollaleira - 730 Reyđarfjörđur - Hans Kjerúlf & Nikólína Rúnarsdóttir - Sími: 894-2148 og 847-8246 - E-mail: nikka966@simnet.is - www.kollaleira.is
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is